Skíðamót Íslands hefst í dag

Skíðamót Íslands 2018 hefst í dag með keppni í sprettgöngu. Í kvöld er formleg setning og á morgun heldur keppni áfram í skíðagöngu og alpagreinar hefja sína keppni í stórsvigi. Hér að neðan má sjá alla dagskrá mótsins.

Fimmtudagur 5.apríl
14:00 - Sprettganga, frjáls aðferð (konur 1,3 km / karlar 1,5 km)
20:00 - Setning mótsins í Fífunni - Íþróttahúsi Breiðabliks

Föstudagur 6.apríl
10:00 - Stórsvig, fyrri ferð (Skálafell)
11:00 - Ganga með hefðbundinni aðferð, einstaklingsræsing (konur 5 km / karlar 10 km)
14:00 - Stórsvig, seinni ferð (Skálafell)
18:00 - Verðlaunaafhending í Fífunni - Íþróttahúsi Breiðabliks

Laugardagur 7.apríl
10:00 - Svig, fyrri ferð (Bláfjöll)
11:00 - Ganga með frjálsri aðferð, hópræsing (konur 10 km / karlar 15 km)
14:00 - Svig, seinni ferð (Bláfjöll)
18:00 - Verðlaunaafhending og veitingar í Fífunni - Íþróttahúsi Breiðabliks

Sunnudagur 8.apríl
10:00 - Samhliðasvig (Bláfjöll)
11:00 - Liðasprettur karla (tveir í liði og hvor tekur þrjá spretti, 1,5 km, hefðbundin aðferð)
12:00 - Liðasprettur kvenna (tvær í liði og hvor tekur þrjá spretti, 1 km, hefðbundin aðferð)

Úrslit verður hægt að nálgast hér og einnig verður lifandi tímataka í alpagreinum á sömu slóð.
Alpagreinar
Skíðaganga

SKÍ stefnir á að vera með beina útsendingu frá stórsvigi á föstudag og svigi á laugardag. Hægt verður að horfa á útsendingarnar á facebook-síðu SKÍ hér.