Samæfing í alpagreinum 28.-29.des 2017

Skíðasamband Íslands ætlar að standa fyrir samæfingu fyrir alla 12 til 15 ára í alpagreinum (iðkendur fæddir 2002-2005). Æfingin fer fram í Bláfjöllum og verður dagana 28.-29. desember. Gist verður í Breiðabliksskálanum uppi í Bláfjöllum. Egill Ingi Jónsson landsliðsþjálfari alpagreina hjá SKÍ verður yfirþjálfari á staðnum og verða tveir aðrir þjálfarar honum til aðstoðar.

Kostnaður við hvern þátttakenda er 7.000 kr og innifalið er gisting, fæði, lyftukort og þjálfun. Hver þátttakandi þarf að millifæra inná reikning Skíðasambands Íslands (kt.590269-1829 – rk.162-26-3860). Félag getur millifært fyrir alla sína iðkendur ef vilji er fyrir því.

Nánari upplýsingar gefur Jón Viðar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SKÍ á netfangið ski@ski.is eða í síma 660-4752. Þau félög sem vilja taka þátt í samæfingunni þurfa að senda skráningu á ski@ski.is í síðasta lagi sunnudaginn 17.desember. Í skráningunni þurfa að koma fram upplýsingar um fjölda þátttakenda, hvort sem um ræðir iðkendur eða þjálfara. 

Dagskrá

Miðvikudagur 27.des
Mæting í Breiðabliksskálann í Bláfjöllum um kvöldið og farið yfir plan helgarinnar

Fimmtudagur 28.des
Æfing á skíðum kl. 9-12
Hádegismatur kl. 12-13
Æfing á skíðum kl. 13-15
Kvöldmatur o.fl. um kvöldið

Föstudagur 29.des
Æfing á skíðum kl. 9-12
Hádegismatur kl. 12-13
Æfing á skíðum kl. 13-15
Heimferð