PyeongChang 2018 - Sturla Snær lauk ekki keppni í stórsvigi

Sturla Snær náði ekki að klára fyrri ferð í dag
Sturla Snær náði ekki að klára fyrri ferð í dag

Keppni hélt áfram í nótt á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í Suður-Kóreu. Sturla Snær Snorrason tók þátt í keppni dagsins sem var stórsvig karla. Síðustu daga hefur verið gott veður á svæðinu og það var engin breyting á því í dag, um -5°frost, sól og logn. 

Sturla Snær náði ekki að klára fyrri ferð í dag. Eftir að hafa átt nokkuð góða ferð hlekktist Sturlu aðeins á neðarlega í brautinni með þeim afleiðingum að hann datt og missti af hliði.

Austurríkismaðurinn Marcel Hirscher vann sannfærandi sigur í stórsviginu. Heildarúrslit má sjá hér.

Sturla Snær tekur næst þátt í svigkeppninni sem fram fer fimmtudaginn 22.febrúar. Allar upplýsingar um íslensku keppendurna má sjá hér.