PyeongChang 2018 - Snorri Einarsson í 56.sæti í 15 km

Snorri Einarsson í brautinni í dag
Snorri Einarsson í brautinni í dag

Á Alpensia skíðagöngusvæðinu í PyeongChang kepptu karlar í 15 km göngu með frjálsri aðferð á Vetrarólympíuleikunum í nótt. Eins og í gær hjá Elsu var bæði frábært veður og færi. Farnir voru tveir 7,5 km hringir sem voru þó eins og fjórir 3,75 km hringir þar sem alltaf var komið við í marksvæðinu.

Snorri Einarsson tók þátt og ræsti út nr.12 af alls 119 keppendum sem tóku þátt frá 62 þjóðum. Snorri átti góða göngu framan af og var meðal annars í 12.sæti á fyrsta millitíma. Fljótlega eftir það dró hins vegar aðeins af honum og að lokum endaði hann í 56.sæti, líkt og í 30 km skiptigöngunni. 

Ljóst er að veikindi Snorra í janúar hafa meiri áhrif á formið hjá honum en reiknað er með, því hann er augljóslega ekki í sama formi og fyrir jól. Þá náði hann meðal annars þrisvar að vera í efstu 30 sætunum.

Snorri á eftir að taka þátt í einni göngu á hans fyrstu Vetrarólympíuleikum en það er 50 km ganga með hefðbundinni aðferð og hópstarti. Fer hún fram laugardaginn 24. febrúar.

Hér að neðan má sjá helstu úrslit úr mótinu og heildarúrslit má finna hér.

RankBibFIS CodeNameYearNationTimeBehindFIS Points
 1  68  3510023 COLOGNA Dario  1986  SUI   33:43.9     0.00
 2  60  3421779 KRUEGER Simen Hegstad  1993  NOR   34:02.2  +18.3  7.23
 3  48  3482280 SPITSOV Denis  1996  RUS   34:06.9  +23.0  9.09
 4  62  3420228 SUNDBY Martin Johnsrud  1984  NOR   34:08.8  +24.9  9.84
 5  70  3190111 MANIFICAT Maurice  1986  FRA   34:10.9  +27.0  10.67
 6  64  3420586 HOLUND Hans Christer  1989  NOR   34:18.4  +34.5  13.64
 7  66  3100110 HARVEY Alex  1988  CAN   34:19.4  +35.5  14.03
 8  52  3500139 HELLNER Marcus  1985  SWE   34:22.6  +38.7  15.30
 9  44  3500664 HALFVARSSON Calle  1989  SWE   34:44.5  +1:00.6  23.95
 10  42  3180053 HEIKKINEN Matti  1983  FIN   34:45.4  +1:01.5  24.31
 11  50  3500015 RICKARDSSON Daniel  1982  SWE   34:55.1  +1:11.2  28.14
 12  20  3510351 FURGER Roman  1990  SUI   34:56.3  +1:12.4  28.62
 13  38  3300190 YOSHIDA Keishin  1987  JPN   34:59.1  +1:15.2  29.72
 14  31  3481803 MELNICHENKO Andrey  1992  RUS   35:02.1  +1:18.2  30.91
 15  33  3200205 BOEGL Lucas  1990  GER   35:04.7  +1:20.8  31.94
 16  39  3150069 JAKS Martin  1986  CZE   35:05.2  +1:21.3  32.14
 17  29  3190268 BACKSCHEIDER Adrien  1992  FRA   35:12.0  +1:28.1  34.82
 18  46  3420961 KROGH Finn Haagen  1990  NOR   35:14.4  +1:30.5  35.77
 19  36  3501223 BURMAN Jens  1994  SWE   35:15.7  +1:31.8  36.29
 56  12  3250038 EINARSSON Snorri Eythor  1986  ISL   37:05.6  +3:21.7  79.73