PyeongChang 2018 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu (myndir)

Allur hópurinn eftir athöfn dagsins
Allur hópurinn eftir athöfn dagsins

Í dag var íslenski hópurinn boðinn velkominn í Ólympíuþorpið í PyeongChang en sérstakar móttökuhátíðir eru haldnar dagana fram að setningarhátíð og var slík hátíð í dag þar sem þátttakendur frá Gana, Liechtenstein, Íslandi, Ekvador og Kosóvó voru boðnir velkomnir.

Á hátíðinni var íslenski fáninn dreginn að hún og þjóðsöngurinn leikinn. Andri Stefánsson, aðalfararstjóri íslenska hópsins skipti á gjöfum við borgarstjóra Ólympíuþorpsins í PyeongChang og skrifaði að því loknu nafn sitt á friðarvegginn í þorpinu sem vígður var af Thomasi Bach, forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) fyrr í vikunni.

Gjöf íslenska hópsins var keramik egg hannað af listakonunni Koggu, en eggið kallast Móðir jörð. Gjöf borgarstjórans var listaverk sem er gylltur kertastjaki, eftirlíking af frægum grip frá 7. öld sem framleiddur er í takmörkuðu upplagi vegna Vetrarólympíuleikanna 2018.

Undir lok hátíðarinnar var þjóðlegur drumbusláttur og loks lauk hátíðinni með því að dansarar sýndu listir sínar og drógu þátttakendur með í dans undir taktfastri tónlist.

Íslenski hópurinn nýtti tímann fyrir hópmyndatöku auk þess sem að alþjóðlegir fjölmiðlar tóku viðtöl við keppendur.

Á morgun verða leikarnir settir formlega en þó er keppnin nú þegar hafin í nokkrum greinum, þ.e. undankeppnum eða riðlakeppnum, en engir keppendur munu hafa lokið keppni á leikunum áður en setningarhátíðin fer fram.