Baldur Vilhelmsson sigraði á WRT í Livigno

Í dag fór fram World Rookie Tour mót í Livigno á Ítalíu. Mótaröðin er ein sú stærsta fyrir keppendur 18 ára og yngri í heiminum og þykir þetta tiltekna mót í Livigno vera það sterkasta innan mótaraðarinnar. Nokkrir íslenskir keppendur tóku þátt og gerði Baldur Vilhelmsson sér lítið fyrir og sigraði elsta flokkinn á mótinu þrátt fyrir að vera á yngsta ári í flokknum. Er þetta annað árið í röð sem íslenskur keppandi sigrar á þessu móti en í fyrra sigraði Birkir Georgsson.

Groms strákar (2003 og yngra)
9.sæti - Benedikt Friðbjörnsson

Rookie strákar (2000-2002)
1.sæti - Baldur Vilhelmsson
12.sæti - Marino Kristjánsson

Öll úrslit má sjá hér.