Andrésar andar leikarnir hefjast í næstu viku

Ljósmynd: Pedromyndir
Ljósmynd: Pedromyndir

41. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 20.-23. apríl 2016

Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með yfir 800 keppendur á aldrinum 5-15 ára ár hvert.  Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og  fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2500-3000 manns sæki leikana.
Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og á sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna.
Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.
Nú er í fyrsta skipti 5 ára börnum boðið að taka þátt í leikunum og fá þau að spreyta sig í leikjabraut að þessu sinni.  Andrésarleikarnir eru fjölskylduhátíð skíðamanna og því hefur oft verið óskað eftir því að yngri systkini fái að taka þátt.  Með þessu er verið að koma til móts við þá ósk.
Eftir frábæran skíðavetur um allt land eru aðstæður í Hlíðarfjalli nú með allra besta móti og veðurspá er góð.  Því búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár.  Nú þegar hafa um 830 börn verið skráð frá 18 félögum á Íslandi, en einnig er búist við nokkrum gestum frá Noregi.
Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudagskvöldið 20. apríl að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda um götur bæjarins.  Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir.  Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar eru í lok hvers keppnisdags.

Einkunnarorð Andrésar andar leikanna eru; Njótum og skemmtum okkur saman!

Líflegur fréttaflutningur verður á Facebook síðu leikanna auk þess sem úrslit og fleiri fréttir verða birt á www.skidi.is

 

Sjá dagskrá leikanna hér til frekari upplýsinga.

 

Ef frekari upplýsinga er óskað:

www.skidi.is

www.facebook.com/andresarleikar

 

Ingólfur Gíslason ingolfur@kexsmidjan.is, sími: 856 2798

Gísli Einar Árnason gislieinar@gmail.com, sími: 862 8607