|
Stórsvigi lokið í Frakklandi |
|
Föstudagur, 13. Febrúar 2009 13:36 |
|
Stórsvigi er lokið í Val d'Isere, fyrstur varð Janka Carlo Sviss á 2:18,82 annar Benjamin Raich Austurrríki á 2:19,53 og þriðji Bandaríkjamaðurinn Ted Ligety á 2:19,81.
Á morgun laugardag fer fram undankeppni í svigi Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík og Gísli Rafn Guðmundsson Ármanni taka þátt í undankeppninni, ekki er ljóst hvort að Björgvin Björgvinsson Dalvík þarf að taka þátt í undankeppninni en það mun skýrast seinna í dag. Árni Þorvaldsson Ármanni hefur dregið sig úr keppni og er á heimleið vegna eymsla í baki. |
|
|
Björgvin og Stefán Jón úr leik í stórsviginu í Frakklandi |
|
Föstudagur, 13. Febrúar 2009 10:46 |
|
Nú er fyrri ferð lokið í stórsviginu í Val d'Isere, þeir Björgvin Björgvinsson Dalvík og Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík féllu báðir úr leik í fyrri ferðinni.
Að sögn Pavels landsliðsþjálfara skíðuðu strákarnir vel fyrri hluta brautarinn Björgvin gerði mistök um miðbik og féll úr keppni hann startaði nr 38, Stefán Jón hoppaði uppúr skíðunum í töluverðum bratta, þar var brautin illa farin en hann startaði nr 74 af 75 keppendum.
|
|
Stórsvig í Frakklandi í dag |
|
Föstudagur, 13. Febrúar 2009 08:35 |
|
Í dag keppa þeir Björgvin Björgvinsson Dalvík og Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík í stórsvigi í Val d'Isere. 75 keppendur starta í dag Björgvin er með rásnúmer 38. og Stefán Jón nr 74. Veðrið í morgun í Val d'Isere var bjart og 15° frost. |
|
Stefán Jón 22. sæti í Frakklandi |
|
Fimmtudagur, 12. Febrúar 2009 13:06 |
|
Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík endaði í 22. sæti á 2.39,34 í undankeppni í stórsvigi í Frakklandi sem var að ljúka, fyrstur varð Alexandr Horoshil Rússlandi á 2.34,70 annar Danko Marinelli Króatíu á 2.35,77 og þriðji David Ryding Þýskalandi á 2.36,32.
Þar með hefur Stefán Jón tryggt sér sæti í aðal keppninni í stórsvigi sem fram fer á morgun föstudag. |
|
Stefán Jón í 26. sæti eftir fyrri ferð |
|
Fimmtudagur, 12. Febrúar 2009 12:29 |
|
Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík er í 26. sæti eftir fyrri ferðina í stórsviginu í Frakklandi á 1.20,79 sem er fjórum sek á eftir fyrsta manni, það voru 105 keppendur sem störtuðu og skilaði 81 sér í mark. Gísli Rafn Guðmundsson var dæmdur úr leik og Árni Þorvaldsson hefur dregið sig úr keppni sökum meiðsla í baki sem hann hlaut í brunkeppninni. Aðstæður eru ágætar í keppnisbakkanum þrátt fyrir mikla snjókoma.
Nú er seinniferðin hafin. |
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |