|
Bikarmót í 14-15 ára flokki frestað |
|
Fimmtudagur, 17. Janúar 2013 17:44 |
|
Bikarmót í flokki 14-15 ára sem átti að fara fram í Bláfjöllum um helgina hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Á næstu dögum verður gefið út hvenær mótið verður haldið. |
|
|
Bikarmóti í alpagreinum lokið |
|
Mánudagur, 14. Janúar 2013 09:27 |
|
Fyrsta bikarmót í alpagreinum fór fram um helgina á Akureyri. Um er að ræða hið fornfræga Hermannsmót, en sérstakur bikar er veittur fyrir samanlagðan árangur í svigi og stórsvigi í karla- (Hermannsbikar) og kvennaflokki (Helgubikar).
Í gær, sunnudag, var keppt í svigi í norðurbakka. Frábært færi var í bakkanum og einnig var veður gott.
Konur: 1. Erla Guðný Helgadóttir 2. Thelma Rut Jóhannsdóttir 3. Kolbrún Lilja Hjaltadóttir
Karlar: 1. Sturla Snær Snorrason 2. Brynjar Jökull Guðmundsson 3. Atli Rafn Gunnarsson
Nánari úrslit má finna hér.
Hermannsbikarinn hlaut Brynjar Jökull Guðmundsson og Helgubikarinn hlaut Erla Guðný Helgadóttir. |
|
Bikarmót í skíðagöngu á Ísafirði |
|
Sunnudagur, 13. Janúar 2013 23:06 |
|
Fyrsta bikarmót vetrarins í skíðagöngu fór fram við góðar aðstæður á Ísafirði um helgina. Ánægjulegt er að sjá að fjöldi þátttakenda hefur aukist miðað við síðustu misseri. Keppendur voru frá Skíðafélagi Akureyrar, Skíðafélagi Ólafsfjarðar, Skíðafélaginu Ulli, Skíðafélagi Strandamanna og Skíðafélagi Ísfirðinga. Á föstudag var keppt í sprettgöngu og í flokki 13-14 ára sigruðu Katrín Ósk Einarsdóttir SFÍ og Hjörvar Sigurgeirsson SKA. Í 15-16 ára flokki sigruðu Elena Dís Víðisdóttir og Guðmundur Bjarnason SFÍ. Í fullorðinsflokki sigruðu þau Ingibjörg Elín Magnúsdóttir SFÍ og Kristján Hauksson SÓ. Á laugardag var keppt í skiptigöngu og á sunnudag með frjálsri aðferð. Þrátt fyrir spennandi keppni urðu sömu sigurvegarar í öllum flokkum þessa tvo daga. Í flokkum 13-14 ára urðu Katrín Ósk Einasdóttir SFÍ og Hjörvar Sigurgeirsson SKA og unnu því bæði þrefalt þessa helgi. Í hinum flokkunum voru ekki sömu sigurvegarar og í sprettgöngunni. Í flokki 15-16 ára sigruðu Hugrún Pála Birnisdóttir SÓ og Ragnar G Sigurgeirsson SKA bæði í skiptigöngunni og frjálsu göngunni. Í fullorðinsflokki urðu einnig sömu sigurvegarar þessa daga, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir SFÍ og Vadim Gusev SKA. Nánari úrslit er að finna hér. |
|
Stórsvigi á Akureyri lokið. |
|
Laugardagur, 12. Janúar 2013 17:16 |
|
Í fór fram stórsvig á fyrsta bikarmóti vetrarins í alpagreinum. Smá seinkun var á mótin vegna ísrigningar, en eftir að henni lauk voru frábærar aðstæður. Bakkinn var mjög harður og sléttur og var nánast engin vindur.
Keppnin í dag var spennandi og skemmtileg, úrslit voru eftirfarandi: Konur: 1. Freydís Halla Einarsdóttir 2. Thelma Rut Jóhannsdóttir 3. Inga Rakel Ísaksdóttir
Karlar: 1. Magnús Finnsson 2. Einar Kristinn Kristgeirsson 3. Brynjar Jökull Guðmundsson
Nánari úrslit má finna hér. |
|
Frábær árangur hjá landsliðsfólkinu okkar. |
|
Föstudagur, 11. Janúar 2013 17:38 |
|
Síðastliðinn sunnudag kláraðist FIS mótaröð í Oppdal Noregi. Helga María Vilhjálmsdóttir og Einar Kristinn Kristgeirsson kepptu í stórsvigi þá. Helga María náði frábærum árangri en hún endaði í 4. sæti eftir að hafa verið í 2. sæti eftir fyrri fer. Þrátt fyrir að hlekkjast örlítið á í seinni ferðinni skoraði hún 35.78 FIS punkta sem eru langbestu punktarnir hennar til þessa í stórsvigi. Úrslit kvenna. Einar Kristinn endaði í 18. sæti eftir að hafa verið í 30. sæti eftir fyrri ferð. Hann fékk 66.72 FIS punkta sem er aðeins frá hans bestu punktum. Úrslit karla.
Skíðasamband Íslands óskar þeim til hamingju með þennan árangur og það verður gaman að fylgjast með þeim á komandi stórmótum.
|
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |