|
FIS/Bikarmót í alpagreinum í Bláfjöllum 9-10. mars. |
|
Föstudagur, 08. Mars 2013 12:56 |
|
Um helgina fer fram FIS/bikamót í Bláfjöllum. Þetta er annað bikarmót vetrarins í flokkum 16. ára og eldri. Samkvæmt dagskrá á að keppa í tveimur svigmótum á laugardag og einu stórsvigi á sunnudag. Dagskrá má finna hér . Upplýsingar og úrslit verða á heimasíðu mótshaldara sjá hér einnig verða úrslit á heimasíðu FIS sjá hér |
|
|
FIS mót í Hakadal í Noregi um helgina. |
|
Föstudagur, 08. Mars 2013 12:35 |
|
Landsliðskonurnar þær María Guðmundsdóttir, Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir keppa á FIS móti i í Hakadal í Noregi. Keppt verður laugardag og sunnudag í stórsvigi. Auk landsliðskvenna eru þau Auður Brynja Sölvadóttir og Sigurður Hauksson skráð til keppni. Hægt verður að fylgjast með tímatöku og úrslitum hér |
|
Bikarmót í skíðagöngu 8-10. mars á Akureyri. |
|
Föstudagur, 08. Mars 2013 12:05 |
|
Um helgina fer fram bikarmót í skíðagöngu. Keppni hefst í dag föstudag með sprettgöngu kl 18:00. Dagskrá hér |
|
María Eva, Arnar Ingi og Bjarki Guðjóns unnu tvöfalt um helgina á Bikarmóti á Dalvík. |
|
Mánudagur, 04. Mars 2013 11:26 |
|
Liðna helgi fór fram bikarmót Skíðasambands Íslands í flokki 14 - 15 ára. Keppt var við frábærar aðstæður í Böggvistaðafjalli við Dalvík en það voru skíðafélögin á Dalvík og í Ólafsfirði sem stóðu fyrir mótinu. Bakkinn var þéttur og harður eins og best gerist og veðrið mjög gott sérstaklega á laugardeginum en smá vindur og éljagangur gekk yfir um hádegisbil án þess þó að hafa áhrif á mótahaldið. Þetta var þriðja mótið í bikarmótaröð Skíðasambandsins en það fjórða og síðasta í þessum flokki fer fram á Unglingameistaramóti í Oddskarði helgina 22. - 24. mars.
í stórsvigi stúlkna 14. ára sigraði Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir Reykjavík, önnur varð Andrea Björk Birkisdóttir Dalvík og þriðja Fanney Ísaksdóttir Akureyri, í flokki 14. ára drengja sigraði Bjarki Guðjónsson Akureyri, annar varð Jón Gunnar Guðmundsson Reykjavík og þriðji Hjörtur Smári Sigurðssin Akureyri. Í flokki 15.ára stúlkna sigraði María Eva Eyjólfsdóttir Reykjavík, önnur varð Elísa Hilmarsdóttir Reykjavík og þriðja Aðalbjörg Pálsdóttir Akureyri, í flokki 15. ára drengja sigraði Arnar Ingi Kristgeirsson Reykjavík, annar varð Eiríkur Ingi Elísson ÚÍA og þriðji Arnaldur Karl Einarsson BBL.
í svigi sem fram fór á sunnudag, sigraði Andrea Björk Birkisdóttir Dalvík í flokki 14. ára stúlkna, önnur varð Hólmfriður Dóra Friðgeirsdóttir Reykjavík og þriðja Fanney Ísaksdóttir Akureyri. í flokki 14. ára drengja sigraði Bjarki Guðjónsson Akureyri, annar varð Kristinn Freyr Ómarsson Siglufirði og þriðji Kjartan Steinn Gunnarsson Reykjavík. Í flokki 15.ára stúlkna sigraði María Eva Eyjólfsdóttir Reykjavík, önnur varð Elísa Hilmarsdóttir Reykjavík og þriðja Aðalbjörg Pálsdóttir Akureyri, í flokki 15. ára drengja sigraði Arnar Ingi Kristgeirsson Reykjavík, annar varð Arnar Birkir Dansson Akureyri og þriðji Eiríkur Ingi Elísson ÚÍA. Úrslit má finna hér |
|
Bikarmót 14-15. ára í alpagreinum á Dalvík/Ólafsfirði |
|
Laugardagur, 02. Mars 2013 12:04 |
|
Um helgina fer fram bikarmót í flokki 14-15. ára á Dalvík / Ólafsfirði. Í dag laugardag verður keppt í stórsvigi á Dalvík, á morgun sunnudag verður keppt í svigi á Ólafsfirði. Dagskrá má finn hér og lifandi tímatöku hér |
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |