|
Miðvikudagur, 01. September 2010 11:02 |
Karla landsliðshópur SKI var á sinni fyrstu samæfingu sl helgi á Akureyri. Landsliðsþjálfarin Ånen Giverhaug stjórnaði þrekæfingunum. Á meðfylgjandi mynd er hópurinn frá vinstri Róbert Ingi Tómasson SKA, Ånen þjálfari, Sturla Snær Snorrason Ármanni, Sigurgeir Halldórsson SKA, Brynjar Jökull Guðmundsson Víking og Jón Gauti Ástvaldsson. Jakob Helgi Bjarnason er við nám í Noregi. Landsliðshópurinn fer væntanlega til Noregs um miðjan september þar sem þeir munu verða við æfingar á Juvas jökli. |
|
|
Irís Guðmundsdóttir slasaði sig í gær við æfingar á Sass Fee í Sviss |
|
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:44 |
Okkar besta skíðakona hún Iris Guðmundsdóttir datt á stórsvigsæfingu í gær og slasaðist á hné. Iris er væntanleg til Noregs á morgun þar sem hún mun gangast undir nánari læknisskoðun.
Íris keppti fyrir Ísland á ólympíuleikunum í Kanada í febrúar 2010. Skíðasamband Íslands sendir Irisi góðar kveðjur um von um fljótan bata. |
|
Kvenna þjálfari alpagreina |
|
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:34 |
SKI hefur ráðið Guðmund Sigurjónsson til þess að hafa umsjón með þjálfun og verkefnum landsliðshóps kvenna og æfingahóps kvenna. Guðmundur mun starfa í samráði við landsliðsþjálfara SKÍ, Ånen Giverhaug. Guðmundur hefur langa reynslu sem þjálfari, bæði með félagsliðum og liðum Skíðasambandsins en Guðmundur var landsliðsþjálfari á árunum 1997 til 1998.
|
|
Íslendingur framkvæmdastjóri skíðamenntaskóla í Noregi. |
|
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:26 |
„Nýlega var Bjarni Th. Bjarnason, viðskiptafræðingur MBA og skíðaþjálfari, ráðinn sem framkvæmdastjóri Dönsk Alpin skíðamenntaskólans í Akerhusfylki í Noregi. Skólinn nýtur virðingar í Noregi fyrir að hafa skilað flestum af betri skíðamönnum inn í afrekslið á vegum norska skíðasambandsins á undanförnum árum. Skólinn er samstarfsverkefni Akershusfylkis og Bærum Skiklubb og hefur verið rekinn í 8 ár. Hlutverk skólans er að gefa skíðamönnum kost á að stunda sína íþrótt samhliða námi. Markmiðið er að stuðla að því að skíðamenn frá Dönski Alpin fari alla leið í sinni íþrótt og keppi í heimsbikarnum í alpagreinum. Bjarni er vel kunnugur í íslenska skíðaheiminum og hefur starfað sem þjálfari fyrir ýmsa íslenska skíðahópa jafnt á Íslandi sem erlendis á undanförnum árum. Sonur Bjarna, Jakob Helgi, er nýbyrjaður í námi í sama skóla. Skíðasamband Íslands óskar Bjarna til hamingju með nýja starfið. |
|
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:22 |
Þeir sitja ekki auðum höndum á skíðasvæðinu í Tindasól . Miklar framkvæmdir hafa verið þar í sumar. Nú er búið að slétta brekkuna hægra megin séð upp en hingað til hefur sú brekka verið þakin þúfum og þurft mikið magn af snjó til að hægt hafi verið að troða brekkuna . Það mun þurfa mun minni snjó til að hægt sé að troða og betri snjósöfnun verður í brekkuni eftir þessar framkvæmdir. Á vinstri hönd upp brekkuna hefur einnig verði slétt og lagfært þar hafa verið settar upp snjógirðingar og lagfært frá því í fyrra . Stæðsta verkfnið er lónið sem svæðið treystir á fyrir snjóbyssur, það hefur verið þétt og ætti að hjálpa mikið til í vetur við snjóframleiðsluna. Einnig er verið að vinna í að bæta lýsingu til að bæta þá aðstöðu sem nú er fyrir skíðamenn og konur í svartasta skammdeginu.
|
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |