Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið í styrktarþjálfun fyrir skíðaþjálfara. Nánar hér
Fræðsluskipulag SKÍ
Þriðjudagur, 11. Október 2011 08:36
Fræðsluskipulag SKÍ er að meginefni til byggt upp eftir fræðsluskipulagi ÍSÍ sem og fræðsluskipulagi norska skíðasambandsins (NSF). Fræðsluskipulag SKÍ byggir þannig á áfangaskiptu kerfi ÍSÍ og verður almennur hluti Þjálfara 1 og 2 alfarið í umsjón ÍSÍ. Með samkomulagi SKÍ við NSF verða námskeið sérgreinahluta byggð á norsku námskeiðunum 'Skileikleder' og 'Trener 1' til 'Trener 4' hvað efni og innihald varðar.
Unnið er að samkomulagi við NFS þannig að um gagnkvæma viðurkenningu verður að ræða og geta þá íslenskir skíðaþjálfarar tekið námskeiðin hvort heldur hjá SKÍ eða NSF í Noregi. Með þessu fyrirkomulagi geta þjálfarar sem lokið hafa t.d. námskeiðunum Þjálfari 1 og 2 hjá SKÍ hér á landi tekið námskeiðið Trener 3 hjá NSF í Noregi og fengið um leið viðurkenningu sem Þjálfari 3.
SKÍÐASAMBAND ÍSLANDS - THE ICELANDIC SKI ASSOCIATION Glerárgata 26, 600 Akureyri - Tel: +354 514 4094, Fax: +354 461 4804 - Email: ski[at]ski.is