|
Vortíðindi frá Jökli Bergmann |
|
Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 09:25 |
|
Kæru ferðafélagar, vinir og samstarfsfólk
Vorið er komið í allri sinni fjallaskíða dýrð á Tröllaskaganum og í þetta sinn með meiri snjó en síðastliðin 7 ár sem gleður okkur skíðamenn jafn mikið og það kvelur bændur sem bölva fannhvítum túnum. Ég er tiltölulega ný komin heim frá Kanada þar sem ég starfaði við þyrluskíða leiðsögn megnið af vetrinum en síðan um miðjan mars hefur verið stöðugur straumur fjallaskíðafólks á Tröllaskagann og vertíðin góð. Efni þessa litla pósts er að kynna fyrir ykkur hvað er að finna í afar fjölbreyttri dagskrá næstu mánaða en líka bara að minna ykkur á að á fjöllum er engin kreppa og nú sem aldrei er tilefni til að sleppa á vit fjallanna og njóta þess að eiga góða daga úti í náttúrunni í góðum félagsskap. Þessu til undirstrikunnar getið þið kíkt á þetta litla video sem ég henti saman úr síðustu fjallaskíðatúrum.
En það er ýmislegt afar spennandi á dagskrá og ber þar fyrst að nefna fjallaskíðatúrana á Tröllaskagann þar sem einhver laus pláss er enn að finna og ný 4 skíðadaga ferð í boði.
Þyrluskíða ferðirnar eru einnig á dagskrá með bæði 4 daga ferðir og svo 1 dags skíðun fyrir þá sem vilja upplifa ógleymanlegt ævintýri. Það er takmarkað sætaframboð og því er ekki eftir neinu að bíða en að smella hér, bóka sæti og taka þátt í þessari einstöku upplifun. Eins dags ferðirnar eru aðeins í boði 17-20 maí meðan pláss leyfir.
Fjallaferðir á landsins hæstu tinda eru svo að sjálfsögðu á dagskránni sem endranær og ber þar helst að nefna Hvannadalshnúk, Hrútsfjallstinda og svo tæknilegri verkefni eins og Hraundranga fyrir þá sem ekki þjást af mikilli lofthræðslu.....Með Bergmönnum þarft þú ekki að hafa áhyggjur af reynslu leiðsögumannsins þíns né lenda í því að ganga í múlasnalest ásamt fleiri hundruð manns þar sem að allir okkar leiðsögumenn eru faglærðir og við ferðumst aldrei með fleiri en 2 hópa í einu. Við erum ennþá með nokkur pláss laus í vor og byrjun sumars fyrir þá sem vilja.
Sumarið gengur svo vonbráðar í garð og þá tekur við klifur, fjallamennska og svo Alpaferðir með Mont Blanc og Matterhorn meðal þess sem á dagskrá er. Það sem hinsvegar ber hæst er splunkunýtt og spennandi prógramm á Tröllaskaganum sem við köllum "Everest viku" þar sem að hæð Mt Everest 8840m er klifin á 6 krefjandi dögum.
Þannig að það er engin lognmolla á Tröllaskaganum þessa dagana og af nógu að taka þegar það kemur að spennandi fjallaferðum og ævintýrum. Þá læt ég þessum vortíðindum lokið og óska þér farsæls fjallavors og sumars og ekki hika við að hafa samband ef það er eitthvað sem að ég get aðstoðað þig með.
Bestu fjallakveðjur úr Skíðadalnum
Jökull Bergmann UIAGM Fjallaleiðsögumaður |
|
|
Síðasti íþróttaþátturinn búinn! |
|
Mánudagur, 22. Desember 2008 10:33 |
|
Fyrir rúmum mánuði síðan, þann 12. nóvember, hleyptu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra af stað Íþróttavakningu framhaldsskólanna eins og átakið er kallað. Skemmra er síðan að menntamálaráðherra lýsti því í sjónvarpsviðtali á RÚV að slá þyrfti skjaldborg um íþróttir, sérstaklega utan um barna- og unglingastarf. Engu að síður er nú sú staða uppi að síðasti íþróttaþátturinn á RÚV hefur farið í loftið. Vegna niðurskurðar verða engir íþróttaþættir á dagskrá, þar til annað er ákveðið. Þátturinn SPORTIÐ fer af dagskrá! Þessi 25 mínútna mánudagsþáttur hefur löngum verið eini vettvangur umfjöllunar, utan fréttatíma, um þær greinar íþrótta sem ekki falla undir tilteknar boltagreinar og golf, þ.m.t. umfjöllun um íþróttir barna- og unglinga.
|
|
|
|
|
|
|