|
Landsliðskonan Helga María keppti í Svíþjóð. |
|
Þriðjudagur, 30. Apríl 2013 12:59 |
|
Helga María Vilhjálmsdóttir keppti á sterku alþjóða svigmóti sem fram fór í Funaesdalen í Svíþjóð 28. apríl sl. Helga María varð í 15. sæti og gerði 56,18 FIS punkta. Var þetta síðasta mót Helgu Maríu á þessum vetri. Úrslit hér |
|
|
Bikarmeistarar SKÍ 2013 í alpagreinum. |
|
Þriðjudagur, 23. Apríl 2013 15:28 |
|
Á skíðamóti Íslands voru bikarmeistarar SKÍ í alpagreinum árið 2013 krýndir.
Bikarmeistarar í flokki 16-17. ára stúlkna og drengja eru þau Thelma Rut Jóhannsdóttir Ísafirði og Jón Elí Rúnarsson Breiðablik, stigahæsta félagið í stúlkna flokki er Skíðafélag Ísfirðinga og í drengja flokki Skíðaráð Reykjavíkur.
Bikarmeistarar í flokki 18-20 ára. stúlkna og drengja eru þau Freydís Halla Einarsdóttir Reykjavík og Einar Kristinn Kristgeirsson Akureyri, stigahæsta félagið í stúlkna flokki er Skíðaráð Reykjavíkur og í drengja flokki Skíðafélag Akureyrar.
Bikarmeistarar í flokki kvenna og karla eru þau Freydís Halla Einarsdóttir Reykjavík og Einar Kristinn Kristgeirsson Akureyri, stigahæsta félagið í kvenna flokki er Skíðaráð Reykjavíkur og í karlaflokki er Skíðafélag Akureyrar. |
|
Fimmtudagur, 11. Apríl 2013 14:49 |
|
9. og 10. apríl fór fram Icelandair Cup FIS mót í Bláfjöllum, keppt var báða dagana í svigi. Á fyrra mótinu sigruðu þau Thelma Rut Jóhannsdóttir Ísafirði og Einar Kristinn Kristgeirsson Akureyri og á því seinna Freydís Halla Einarsdóttir Reykjavík og Jakob Helgi Bjarnason Dalvík. Úrslit hér |
|
Icelandair Cup í Bláfjöllum. |
|
Mánudagur, 08. Apríl 2013 16:05 |
|
Icelandair Cup FIS mót verður haldið í Bláfjöllum 9. og 10. apríl nk. Keppt verður báða dagana í svigi kvenna og karla. Dagskrá hér |
|
Einar Kristinn Kristgeirsson íslandsmeistari í svigi og stórsvigi |
|
Laugardagur, 06. Apríl 2013 14:37 |
|
Einar Kristinn Kristgeirsson og María Guðmundsdóttir Akureyri Íslandsmeistarar í stórsvigi á Skíðamóti Íslands sem fram fer þessa helgina í Tungudal á Ísafirði.
Þetta er annar Íslandsmeistaratitill Einars á mótinu því hann varð einnig meistari í svigi í gær. Sturla Snær Snorrason úr Reykjavík varð annar og Sigurgeir Halldórsson Akureyri þriðji. Í kvennaflokki varð Freydís Halla Einarsdóttir Reykjavík önnur og Helga María Vilhjálmsdóttir Reykjavík þriðja.
|
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |