Á svæðinu er 1 km löng diskalyfta og byrjendalyfta rétt ofan við skíðaskálann með þægilegum halla. Austur-Hérað og Seyðisfjarðarkaupsstaður reka saman skíðasvæðið í Stafdal, sem liggur á milli Efri-Stafs og Neðri-Stafs í Fjarðarheiði. Aðeins er 10 mín. akstur frá Seyðisfirði og 15 mín. akstur frá Egilsstöðum. Skíðabrekkurnar í Stafdal eru við allra hæfi auk þess sem svæðið er flóðlýst.
Aðstaða fyrir brettafólk: Að margra mati er skíðasvæðið í Stafdal eitt besta svig, skíðaog snjóbrettasvæði landsins. Góð aðstaða er fyrir brettafólk á svæðinu Stutt í víðáttuna fyrir vélsleðafólk. Vélsleðafólk hefur víðáttu og auðfarnar slóðir í allar áttir til að ferðast um frá Stafdal. Aðeins tekur rúma klukkustund að skjótast á vélsleða að hinum frægu Dyrfjöllum.
Opið: Virka daga frá kl. 15-19 Helgar frá kl. 11-17
Börn 7-15 ára:
Fullorðnir:
Dagskort:
400 kr.
800 kr.
Árskort:
4.500 kr.
9.000 kr.
Frítt fyrir 6 ára og yngri
Í skíðaskálanum eru seldar léttar veitingar um helgar. Ýmsar nýjungar og framkvæmdir eru fyrirhugaðar í nánustu framtíð. Á næstunni verður m.a. byggður nýr skíðaskáli. Hægt er að skoða myndir og fylgjast með á vefsíðunni www.sfk.is/skidasvaedi.htm
Nánari upplýsingar: Upplýsingar um svæðið er að finna á símsvara þess, 878-1160 eða á upplýsingamiðstöðinni í síma 472-1551. Netfang upplýsingamiðstöðvarinnar er
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Umsjónarmaður svæðisins: Gunnþór Jónsson. Heimasíða: www.simnet.is/saxi Gisting: Hægt er að fá gistingu í ýmsum gæðaflokkum á Egilsstöðum og Seyðisfirði og flogið er til Egilsstaða frá Reykjavík daglega.
Hér fyrir neðan er kort af skíðasvæðunum á landinu. Einnig er hægt að velja svæði úr listanum hér til hliðar.
SKÍÐASAMBAND ÍSLANDS - THE ICELANDIC SKI ASSOCIATION Glerárgata 26, 600 Akureyri - Tel: +354 514 4094, Fax: +354 461 4804 - Email: ski[at]ski.is