| Vel heppnuðu unglingameistaramóti lokið. |
| Mánudagur, 26. Mars 2012 09:53 |
| Unglingameistaramóti Íslands sem haldið var á Ísafirði lauk í gær sunnudag með keppni í samhliðasvigi og boðgöngu. Keppendur og aðrir aðstandendur voru sammála um að vel hefði tekist til í mótshaldi, auk þess sem veðurguðirnir voru greinilega í liði með keppendum í ár, en veðrið lék við keppendur alla helgina. María Eva Eyfjólfsdóttir, Arnar Ingi Kristgeirsson og Helga María Vilhjálmsdóttir öll frá Reykjavík gerðu sér lítið fyrir og unnu fjórfalt og þar með fjórfaldir unglingameistarar í svigi, stórsvigi, alpatvíkeppni og samhliðasvigi. Öll úrslit frá unglingameistaramóti 2012 í alpagreinum og skíðagöngu hér |





